Utanríkisráðherra Tyrklands vill Egyptaland með í varnarsamvinnu

Tyrkneski utanríkisráðherrann Hakan Fidan býst við að Egyptar taki þátt í gagnkvæmu varnarsamkomulagi Sádi-Arabíu, Pakistans og Tyrklands.Hakan Fidan utanríkisráðherra Tyrklands.EPA / SERGEI ILNITSKYSamningurinn var undirritaður á föstudag þar sem meðal annars segir að árás á eitt ríkjanna jafngildi árás á þau öll.Fidan sagðist í samtali við Anadolu-fréttastofuna telja eðlilegt að Egyptar tækju þátt enda samvinna ríkjanna þegar mikil. Um leið og tekist hefði að leysa úr ákveðnum tæknilegum úrlausnarefnum væri engin ástæða til að Egyptar væru utan samkomulagsins.
Utanríkisráðherra Tyrklands vill Egyptaland með í varnarsamvinnu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd