Ísraelsmenn hafna friðaráætlun Trumps

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að Ísraelsmenn muni ekki taka þátt í fimmtán punkta friðarsamkomulagi, sem svokallað friðarráð Donalds Trump Bandaríkjaforseta setti saman. Reuters greinir frá þessu.„Ísrael muni ekki draga herlið sitt frá Gaza fyrr en Hamas hefur afvopnast að fullu,“ hefur Reuters eftir Netanjahú.Trump hefur þegar greint frá því að Hamas hafi samþykkt samkomulagið, sem var kynnt í síðasta mánuði. Í því átti að felast full afvopnun Hamas og annarra vopnaðra hópa á Gaza.
Ísraelsmenn hafna friðaráætlun Trumps

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd