Landhelgisgæslan hefur gert athugasemd við áform um að breyta tveimur fjölbýlishúsum á Ásbrú í Reykjanesbæ í hjúkrunarheimili. Bendir varnarmálasvið Gæslunnar á að húsin séu um 650 metra frá þeim hluta Keflavíkurflugvallar sem ætlaður er undir flug herflugvéla.