Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun eftir að maður slasaðist í mótorhjólaslysi á miðhálendinu.Slysið varð nærri Þórisvatni á Sprengisandsleið. Nánari upplýsingar um líðan mannsins liggja ekki fyrir að svo stöddu.Einar Valsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisæslunni, segir útkallið hafa borist klukkan tíu.Þá hafi þyrlan verið í loftinu í öðrum erindagjörðum en henni snúið við og stefnt að Sprengisandsleið til að sækja manninn.