Hildur fékk ADHD greiningu á fullorðinsaldri og fór á lyf sem henni fannst hjálpa sér til að byrja með. Hún tók lyfin í sjö ár en áttaði sig síðar á að þau ýttu undir fullkomnunaráráttu og gerðu henni kleift að keyra sig út í verkefnum sem varð þess valdandi að hún upplifði mikla kulnun og vanlíðan. Hún hætti á lyfjunum og fann sér nýjar leiðir til að stuðla að heilbrigðari lífsstíl, m.a. uppgötvaði hún hugleiðslu sem hún segir hafa breytt lífi sínu til hins betra. Tónlistina hefur hún sett í pásu í bili þó hún segi hana alltaf verða hluta af sér. Hulda Geirsdóttir ræddi við Hildi um uppvöxtinn, tónlistina, lífið í Japan og baráttuna við að finna jafnvægi og ró. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.