Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði með því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar á ný. Hún greinir frá þessu í viðtali við fjölmiðilinn Gímaldið.Stefna Vinstri grænna hefur alla tíð verið að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Raunar voru Evrópumálin meðal helstu ágreiningsmála á vinstri vængnum, sem urðu til þess að flokkurinn var stofnaður upp úr aldamótum, þegar til stóð að sameina vinstriflokka undir merkjum Samfylkingarinnar.Þrátt fyrir það hefur um nokkurra ára skeið mælst meirihluti meðal kjósenda VG fyrir því að hefja aðildarviðræður á ný. Í nýlegri könnun Maskínu, sem gerð var fyrir DV, sögðust 93,4% kjósenda flokksins ætla að segja já.Stutt er síðan Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður flokksins,