Ungmenni kaupa meira og meira af geisladiskum

Sala á tónlist á áþreifanlegu formi hefur aukist stöðugt síðan 2020. Vínylplötur njóta mikilla vinsælda og verslunarmenn segja ungmenni farin að sækjast í geisladiska.„Það er bjart framundan,“ segir Þorvaldur Kristinn Gunnarsson, sem rekur Geisladiskabúð Valda. SALA Á TÓNLIST EYKST EFTIR AÐ HAFA NÁÐ BOTNI Árið 2010 voru seld 337 þúsund eintök af vínylplötum og geisladiskum á Íslandi. Áratuginn á eftir hríðféll salan samhliða auknum vinsældum streymisveitna og náði loks botni árið 2020, þegar seld eintök voru aðeins 44 þúsund eða 13% af sölunni 2010.Síðan þá hefur salan vaxið stöðugt þó að hún sé fjarri fyrri hæðum. Árið 2024 voru seld eintök 67 þúsund. Hér er vísað í upplagseftirlit Félags hljómplötuframleiðenda sem vert er að benda á að nær ekki til allrar sölu á tónlist hérlendis.Heil
Ungmenni kaupa meira og meira af geisladiskum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd