Enn hefur ekki tekist að svara því hvernig skógareldar í Frakklandi sem geisuðu í sumar hófust. Margir vilja meina að eldarnir séu birtingarmynd loftslagsbreytinga en þar sem níu af hverjum tíu skógareldum sem hafa komið upp í Frakklandi leita yfirvöld logandi ljósi að sökudólgi. Þarlend ríkisstjórn hefur þó jafnframt verið sökuð um að hafa verið illa undirbúin fyrir eldsvoðana og gripið seint inn í.