Spáin á sólmyrkvadaginn gefur ívið betri fyrirheit

Í dag dregur enn frekar úr norðanáttinni. Áfram má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á Norður- og Norðausturlandi. Þá verður bjart að mestu sunnan- og vestanlands en líkur á skúrum allra syðst. Hiti víða 10 til 16 stig um sunnanvert landið.Á morgun reikna veðurfræðingar með hægum vindi og að víða verði léttskýjað. Hlýnar norðan- og austanlands. Lægð nálgast landið úr suðri á þriðjudag, þá þykknar upp og rignir, fyrst syðst.Spáin fyrir sólmyrkvadaginn hefur undanfarinn sólarhring gefið ívið betri fyrirheit um að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið, einkum um kvöldið. Útlit er fyrir að skil fari yfir landið og reiknað er með að skýjað verði víða og rigning, einkum á sunnanverðu landinu.
Spáin á sólmyrkvadaginn gefur ívið betri fyrirheit

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd