Sjö mismunandi tilkynningar um líkamsárásir bárust vakthafandi lögreglu á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Mikill fjöldi var samankominn í miðborginni í gær en hin árlega Gleðiganga fór þar fram og var lögregla kölluð til vegna samkvæmishávaða á svæðinu.