„Þetta var alltaf minn griðastaður. Þegar það var erfitt, í skóla eða félagslífi, þá gat ég alltaf flúið það með því að dansa og stúdíóið var minn staður,“ segir hin 34 ára gamla Lilja Rúriksdóttir sem byrjaði þriggja ára í dansi, náði mjög góðum árangri úti í heimi og einkenndist ferilinn af æðislegum hæðum og svo erfiðum lægðum. Lilja hefur frá mörgum ævintýrum að segja og eftir að hafa endurheimt rödd sína hefur hún aldrei verið á betri stað.