Lögreglu bárust sjö tilkynningar um líkamsárásir á því varðsvæði sem sinnir vesturhluta Reykjavíkur og Seltjarnarnesi. Ekkert er tíundað um umfang eða alvarleika árásanna í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Tilkynnt var um hóp ungmenna í miðborginni þar sem eitt þeirra var sagt munda hníf auk þess sem innbrotsþjófur var handtekinn þar um slóðir. Lögreglumenn vísuðu manni brott af bráðamóttöku Landspítalans sem neitaði að fara og sinnti útköllum vegna samkvæmishávaða.Ökumenn voru stöðvaðir fyrir ýmsar sakir, þar á meðal ölvunar- og hraðakstur og einn fyrir að aka á negldum vetrardekkjum. „Þó sumarið hafi ekki verið eftir vonum á höfuðborgarsvæðinu minnir lögregla á að tímabil nagladekkja hefst ekki fyrr en 1. nóvember,“ segir í skeyti lögreglunnar.