Ríkissaksóknari Ekvador hefur ákært sjö manns sem taldir eru hafa skipulagt morðið á forsetaframbjóðandanum Fernando Villavicencioskömmu fyrir kosningar árið 2023. Villavicencio þótti sigurstranglegur, hafði starfað sem rannsóknarblaðamaður og hét því að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi næði hann kjöri.Hann hafði greint yfirvöldum frá líflátshótunum skömmu fyrir morðið. Saksóknari sagði í færslu á X að meðal hinna ákærðu væru Jose Serrano fyrrverandi innanríkisráðherra, Ronny Aleaga fyrrverandi þingmaður og kaupsýslumaðurinn Xavier Jordan sem búsettur er í Bandaríkjunum.Hann er grunaður um að hafa fjármagnað og skipulagt morðið. Aleaga, sem nýtur hælis í Venesúela, samræmdi aðgerðir á morðstað og Serrano er sagður hafa upplýst glæpagengið Los Lobos um hvar Villavicencio væri að finn