Kvárið Sindri „Sparkle“ Freyja Bjarnabur segir þolinmæði sína á þrotum eftir að hafa verið grýtt á leiðinni heim ásamt eiginmanni sínum eftir Gleðigöngu Hinsegin daga í gær. Hán segir í myndbandsfærslu á samfélagsmiðlum fimm unga menn hafa staðið við hús í Vesturbænum þar sem þau áður bjuggu og tekið „þá ákvörðun að það má bara drepa transfólk á götunni“.Þeir hafi forðað sér á hlaupum áður en hjónunum tókst að hringja í lögreglu og því ekkert hægt að gera í málinu. Sindri Freyja segist oft verða fyrir aðkasti fyrir það eitt að vera trans, hán hafi fyrst verið beitt líkamlegu ofbeldi árið 2020 og oft sé öskrað á hán á götum úti.Hér fyrir neðan má sjá færsluna:Sindri Freyja lýsir einnig atviki sem gerðist fyrir þremur vikum þegar ungur maður veifaði hjólabretti sem vopni og kallaði transfólk