Krabbamein Joes Biden hefur dreift sér víðar um líkamann

Hunter Biden talaði meðal annars um heilsu föður síns Joes Biden í viðtali á BBC síðasta föstudag og sagði krabbameinið sem hann glímir við hafa dreift sér um líkamann. Biden var elsti maðurinn sem gegnt hefur embættinu þegar hann lét af störfum.Joe Biden greindi frá því í maí á síðasta ári að hann hefði greinst með illvígt krabbamein í blöðruhálskirtli sem hefði breiðst út í beinin. Í júlí sagði Biden að geisla- og hormónameðferð gengi að óskum um leið og hann tilkynnti útgáfu endurminninga sinna.Hunter Biden sagði í viðtali á Newsnight að þrátt fyrir meðferðina hefðu meinvörpin dreift sér í önnur líffæri. Erfitt væri að sjá heilsu forsetans fyrrverandi hnigna smám saman og þann sársauka sem meinið veldur. Hins vegar væri hann hvergi hættur að ferðast og flytja erindi víða.Þrátt fyrir að
Krabbamein Joes Biden hefur dreift sér víðar um líkamann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd