Ráðamenn í Óman segja að vel hafi miðað í samkomulagsátt við Írana um opnun siglingaleiðar um Hormússund. Ætlunin sé að bæði ríkin beri ábyrgð á að tryggja siglingar um sundið en fulltrúar beggja segja að þótt ágætlega miði sé útilokað að spá hvenær samningar náist. Íranar hafa nánast algerlega lokað sundinu síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar lögðu til atlögu gegn þeim í febrúar. Fimmtungur allra farmflutninga heimsins fara um Hormússund á friðartímum. Íranski utanríkisráðherrann Abbas Araghchi sagði algera opnun sundsins velta á því að Bandaríkin bættu fyrir rof á samkomulagi um vopnahlé og framhald viðræðna frá í júní. Sá samningur rann fljótt út í sandinn og árásir hófust á báða bóga nokkrum dögum eftir undirritun. Æðsti yfirmaður öryggismála í Íran, Mohammad Baqer Zolqadr, segir sundið e