Minnst 20 þúsund hafa flúið heimili sín vegna skógarelda í Bresku Kólumbíu

Hluti þjóðvegar 97 í Bresku Kólumbíu er lokaður.AP/The Canadian Press / Gary NylanderAð minnsta kosti 20 þúsund hafa neyðst til að flýja heimili sín í kanadíska fylkinu Bresku Kólumbíu af völdum skógarelda. David Eby, forsætisráðherra fylkisins, hefur lýst yfir neyðarástandi um gjörvallt fylkið. Samkvæmt upplýsingum eftirlitsstofnunar með gróðureldum þekur skógareldurinn meira en 95 ferkílómetra skóglendis í tveimur héruðum. Skógareldar hafa geisað víða um Kanada það sem af er sumri.
Minnst 20 þúsund hafa flúið heimili sín vegna skógarelda í Bresku Kólumbíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd