Skip á Hormússundi.AP/ISNA / Amirhosein KhorgooiEldflaug hæfði olíuflutningaskip á siglingu um Hormússund undan ströndum Óman í dag. Í færslu bresku siglingamálastofnunarinnar UKTMO kviknaði eldur um borð sem greiðlega gekk að slökkva.Reuters segir skipið vera í eigu ríkisolíufélags Sameinuðu arabísku furstadæmanna, sem segir flauginni hafa verið skotið frá Íran. Írönsk stjórnvöld hafa ekki enn tjáð sig um atburðinn. Þau eiga í viðræðum við stjórnvöld í Óman um opnun Hormússunds, sem sagðar eru jákvæðar og uppbyggilegar.