Danskur tónlistarfræðinemi, Carl Emil Martin, hefur vakið athygli fyrir að afhjúpa hina fullkomnu laglínu. Laglínuna má heyra í mismunandi útfærslum í tugum ef ekki hundruðum popplaga. Sjálfur kennir Carl Emil laglínuna við Alpha-kynslóðina þar sem flest lögin voru samin á öðrum og þriðja áratug þessarar aldar. Sé litið út fyrir popptónlistarstefnuna má jafnvel finna dæmi úr klassískri tónlist frá 19. öld.Hundruð laga í viðbót noti svo afbrigði laglínunnar en Carl vill ekki setja þau undir sama hatt.Carl Emil greinir frá uppgötvun sinni í myndbandi á YouTube sem hefur fengið nærri fjórar milljónir áhorfa. Hann segir að lagið APT. með ROSÉ og Bruno Mars hafi komið honum á sporið. Það hafi minnt hann á Reckless með Madison Beer og Ode to the Mets með The Strokes.Í myndbandinu útskýrir hann a