Tatíana Kim er ríkasta kona Rússlands. Hún starfaði fyrstu fullorðinsáron sem enskukennari, en stofnaði árið 2004, þá 28 ára gömul, fyrirtækið Wildberries, sem lýsa mætti sem rússneska Amazon, og hefur grætt á tá og fingri síðan. Nú er reksturinn sagður í hættu, vegna stríðs Rússlands og Úkraínu.