Úkraínumenn segjast alls ekki hafa beint dróna vísvitandi að Búlgaríu

Úkraínsk stjórnvöld segjast alls hafa beint spjótum sínum að Búlgaríu eftir að öflugur árásardróni sprakk nærri landamærum landsins að Rúmeníu nærri Trans-Balkan gasleiðslunni sem liggur frá Tyrklandi til Úkraínu. Engan sakaði. Varnarmálaráðuneyti Búlgaríu segir rannsókn sýna að dróninn sé sömu gerðar og Úkraínuher notar mikið en ekkert bendi til að honum hafi vísvitandi verið beint til Búlgaríu. Úkraínski sendiherrann hefur verið kallaður á teppið í búlgarska utanríkisráðuneytinu á mánudag. Í yfirlýsingu úkraínska utanríkisráðuneytisins segir að herinn hafi ekki viljandi beint vopnum að Búlgaríu og að unnið verði náið með þarlendum yfirvöldum að lausn málsins.Búlgarski forsætisráðherrann Rumen Radev sagði í myndbandsávarpi að ljóst væri að dróninn hefði borið mikið sprengiefni. Sprengingi
Úkraínumenn segjast alls ekki hafa beint dróna vísvitandi að Búlgaríu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd