Maður slasaður eftir spark frá hesti

Alvarlegt slys varð austur af Kirkjubæjarklaustri í kvöld þar sem maður varð fyrir sparki frá hesti og hlaut af því höfuðáverka. Vísir greinir fyrst frá. Útkallið barst um klukkan korter yfir sjö í kvöld.Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flytur manninn til Reykjavíkur. Áætlað er að þyrlan lendi í Reykjavík um korter yfir níu, samkvæmt Einari Valssyni, aðgerðarstjóra hjá Landhelgisgæslunni. Ekki liggur fyrir hversu alvarlegir áverkarnir eru.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Maður slasaður eftir spark frá hesti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd