„Við höfum alltaf verið hérna og við munum halda áfram að vera hérna“

„Fólk er oft eitthvað: „Já, er ekki komið nóg?“ en við höfum alltaf verið hérna og við höldum áfram að vera hérna,“ segir Ísold Klara Felixdóttir, sem tók þátt í göngunni í ár.Guðjón Þorgils, höfundur lags Hinsegin daga, segir það hafa verið frábæra upplifun að semja lagið. „Þetta er æðislegt sko. Við þurfum alltaf að halda áfram að berjast fyrir því að vera við sjálf. Ég meina, þetta getur verið erfitt, lífið getur verið erfitt. Það er ekki alltaf slétt í gegn eins og hárið mitt á morgnanna en eins og ég segi það þarf bara að hafa þetta út af því að þetta er svo skemmtilegt. Þetta er ekki bara upp á jafnrétti og annað, það er líka um það að endurspegla gleðina.“
„Við höfum alltaf verið hérna og við munum halda áfram að vera hérna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd