Mosfellingurinn efnilegi Kristján Karl Guðjónsson átti eitt af höggum dagsins í aðhöggi á 16. holu. Það er í raun með hreinum ólíkindum að boltinn hafi ekki farið inn, en hann stoppaði hreinlega á holukarminum.Kristján beið og gaf sér dágóða stund til að sjá hvort boltinn myndi slysast ofan í, en boltinn var sennilega nokkrum millímetrum frá holunni.Að lokum var vindurinn ekki hliðhollur Kristjáni sem gat hlegið að þessu. Þetta var ótrúlegt högg en líka mikil óheppni.Kristján er í 5. sæti á einu höggi yfir pari að þremur hringjum loknum. Hann fór 16. holu á fugli en var ansi nálægt erni.