Hlaupari rakst á úlf og hvolpinn hans sunnan við Råbjerg Mile á Norður-Jótlandi í gær. Úlfurinn beraði tennurnar fyrir hlauparanum og hárin risu á hnakka dýrsins. Hlauparinn hrópaði á úlfinn til að fæla hann burt, sem bar árangur eftir nokkurn tíma.Danska ríkisútvarpið greinir frá þessu.Fólk er beðið um að fara ekki um svæðið þar til ástandið hefur verið metið nánar.Sérfræðingar frá Árósaháskóla og Náttúrufræðisafninu í Árósum voru fengnir til að meta atvikið. Þeir meta það svo að það hafi ekki verið hættulegt. Hegðun úlfsins hafi verið til þess fallin að koma skokkaranum burt frá úlfahvolpinum.Engu að síður er mælt með því að fólk haldi sig frá svæðinu. HÆGT AÐ SÆKJA UM LEYFI TIL AÐ SKJÓTA ÚLFINN Þá leitaði úlfur í börn á leik í einkagörðum í þremur aðskildum atvikum á miðvikudaginn í