Kjósendur þurfa að vera mjög vel vakandi yfir því hvaðan upplýsingarnar koma, hvers eðlis þær eru og sannreyna þær í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þetta segir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Bagalegt sé að ekki hafi verið fyllt upp í glufur á íslenskum lögum um fjármögnun baráttuhópa og netmiðlun fyrir kosningarnar. ÁBENDINGAR ÖSE FÁ EKKI ÞINGLEGA MEÐFERÐ FYRIR KOSNINGARNAR Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir miður að athugasemdir ÖSE um glufur í íslenskum lögum varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna fái ekki þinglega meðferð fyrir kosningarnar.„Eins og væri ef þing væri að störfum,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. „Þetta virðist vera sú leið sem að ríkisstjórnin vildi fara, að þingið væ