Úkraínuher segist ekki hafa beint dróna að Búlgaríu af ásettu ráði

Úkraínumenn segjast ekki hafa beint dróna af ásettu ráði að Búlgaríu. Búlgörsk stjórnvöld segja dróna af tegund sem Úkraínuher noti mikið hafa hafnað nærri gasleiðslu í landinu nálægt rúmensku landamærunum.Utanríkisráðherra Búlgaríu hefur kallað sendiherra Úkraínu á sinn fund. Þær munu funda á mánudag, að sögn aðstoðarmanna þeirra.Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki svarað því beint hvort dróninn hafi verið úkraínskur, en í yfirlýsingu frá talsmanni utanríkisráðuneytisins er tekið fram að Úkraínuher hafi ekki vísvitandi beint drónum, eða öðrum vopnum, að Búlgaríu.„Við erum í nánu sambandi við Búlgari til að skýra aðstæður,“ er haft eftir Georgiy Tykhyi, talsmanni utanríkisráðuneytisins, í frétt AFP.Nokkuð hefur verið um það að drónar úr stríði Rússa og Úkraínumanna hafni innan lögsögu nágrannarí
Úkraínuher segist ekki hafa beint dróna að Búlgaríu af ásettu ráði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd