Rúta með 34 þýskum ferðamönnum um borð valt út af R6-brautinni í Þrændalögum í Noregi í morgun. Slökkvilið og sjúkrabílar fóru á vettvang og ellefu voru fluttir á sjúkrahús. Sjúkraþyrla og björgunarþyrlur frá Bodø og Ørland voru einnig sendar á staðinn.Ómeiddir farþegar voru fluttir á hjúkrunarheimili í Namsskogan.„Samkvæmt upplýsingum núna eru engin alvarleg slys á fólki, en nokkrir eru með minniháttar meiðsl,“ er haft eftir Anlaug Oseid, aðgerðastjóra hjá lögreglunni í Þrændalögum, í frétt NRK. „ÞETTA FÓR MJÖG, MJÖG VEL“ Vitni sem komu á staðinn rétt eftir slysið þurftu að brjóta sér leið inn í rútuna með hamri til að aðstoða farþega.„Það var svolítil ringulreið,“ segir Elin Torgnes sem var meðal þeirra fyrstu sem komu á slysstað, í frétt NRK.„Ég hjálpaði bara sjúklingum og þeim sem v