Nicole Zohdi er bandarísk stórborgarstúlka sem endaði á sveitabæ í Grímsnesi innan um fimmtíu hesta. Ástin dró hana til Íslands og í dag er hún alsæl í sveitinni þar sem hún rekur hestaleigu ásamt íslenskum eiginmanni. Nicole deilir lífi sínu á samfélagsmiðlum og er þar afar vinsæl.