Jesús Fernández-Villaverde er spænskur prófessor í hagfræði við University of Pennsylvania í Bandaríkjunum. Aðspurður um áhrif aðildar Spánar að Evrópusambandinu segir hann: „Spánn fékk aðallega betri stofnanir og skuldbindingu um að forðast sérstaklega slæma efnahagsstefnu.“ Hann er á meðal þekktustu sérfræðinga á sviði þjóðhagfræði, ekki síst á sviði tölulegrar hagfræði og hagfræðilegrar líkanasmíðar, helstu verkfærum seðlabanka og hagstjórna. Hann hefur kennt...