„Um að gera að taka ömmu“ á dragbröns í Austurbæ

Um 200 manns komu saman í Austurbæ í Reykjavík í hádeginu á dragbröns í tilefni hinsegin daga.„Fólk kemur hérna að horfa á showið okkar og fær sér hádegismat á meðan og kannski einhverja drykki,“ segir dragdrottningin Miss Whoop Whoop. Hún var ein þeirra sem kom fram á viðburðinum, sem er haldinn í tilefni hinsegin daga.Dragbröns er haldinn með reglulegu millibili, oft eins til tveggja mánaða, en dögurðurinn í dag var sá fjölsóttasti hingað til.„Þetta er fyrir alla, fyrir utan kannski börnin. Þetta er svona fullorðinsskemmtun. En það er um að gera að taka ömmu,“ segir Miss Whoop Whoop. „Við vorum með eina um daginn sem var hátt í níræð og hún sagðist ekki hafa skemmt sér svona vel í mörg ár.“Stærsti dragbröns Íslandssögunnar var að líkindum haldinn í Austurbæ í dag. Dragdrottning segir að
„Um að gera að taka ömmu“ á dragbröns í Austurbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd