Gistinóttum Íslendinga á hótelum og gistiheimilum hér á landi fækkar milli ára og hefur fækkað síðustu fimm ár. Ferðamálastjóri segir ekki hægt að skýra breytinguna með neinum einum þætti.Gistinóttum Íslendinga hefur fækkað um 27% jafnt og þétt á síðustu fjórum árum. Á einu ári, frá júlí í fyrra til júní í ár, voru gistinæturnar nærri 1,3 milljónir en þær voru 1,8 milljónir á sama tímabili fjórum árum áður.Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri segir samspil margra þátta skýra samdráttinn. Hann bendir á að gistinóttum Íslendinga hafi fjölgað mikið á meðan covid-faraldurinn geisaði en þeim hafi svo fækkað aftur.„En ég held að það sé ekki hægt að skýra þetta með einhverjum einum breytileika. Helstu skýringar gætu verið það sem oft er nefnt, hár kostnaður við innanlandsferðir. Gisting, veitingar,