Starfandi innviðaráðherra, tekur undir áhyggjur strandveiðisjómanna af óvissu í greininni og misskiptingu milli landshluta. Hún vill fara yfir málin með sjómönnunum og finna varanlegri lausnir fyrir greinina.Inga Sæland, sem er starfandi innviðaráðherra, undirritaði í vikunni breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Aflaheimildir til strandveiða verða auknar um tæp þúsund tonn, úr rúmum 13 þúsund tonnum í rúm 14 þúsund. Með því ættu strandveiðar að ná 48 dögum, skerðingarlaust. MIKILVÆGT AÐ HÆGT SÉ AÐ TREYSTA Á ATVINNUGREININA Strandveiðisjómenn fagna aukningunni en vilja sjá meiri fyrirsjáanleika í greininni. Inga segir mikilvægt að hægt sé að treysta á atvinnugreinina. Komið verði saman á vinnustofum í haust.„Nú hef ég boðað formann landsambandsins, ég hef talað við smábátasjóm