Grænlenska landsstjórnin hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu um að um að olíu- og námufyrirtæki sem kallast Greenland Energy hafi í leyfisleysi flutt tækjabúnað til að bora tilraunaholur á austurströnd Grænlands.Fyrirtækið er handhafi leyfis til að kanna olíulindir á Grænlandi, en engin slík leyfi hafa verið gefin út síðan 2021.Í yfirlýsingu grænlenska iðnaðarráðuneytisins um síðustu mánaðarmót segir að allir leyfishafar séu sterklega varaðir við því að flutningar á tækjabúnaði þurfi að fá umfjöllun og leyfi stjórnvalda, áður en ráðist sé í slíkar aðgerðir.Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist ekki af baki dottinn með áform um að ná yfirráðum yfir Grænlandi. Í nýlegu viðtali sagði hann að það væri öruggt að veðja á að þetta verði að veruleika meðan hann er forseti.Trump lét þessi orð