Todd Blanche var í morgun staðfestur sem dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Öldungadeild þingsins samþykkti tilnefninguna með eins atkvæðis mun.50 þingmenn repúblikana greiddu atkvæði gegn tilnefningunni, en 49 þingmenn greiddu atkvæði gegn henni, allir þingmenn demókrata auk repúblikananna Susan Collins og Lisu Murkowski.Atkvæði repúblikanans Bill Cassidy réð úrslitum, en andað hefur köldu milli hans og Trumps. Við atkvæðagreiðsluna sagði hann að hann teldi Blanche vera skásta kostinn sem Trump myndi leggja fram.Blanche var um tíma einkalögmaður Trumps og hefur unnið innan dómsmálaráðuneytisins á kjörtímabilinu.Hann sá til að mynda um birtingu ráðuneytisins á Epstein-skjölunum og hafði aðkomu að fyrirhuguðum sjóði sem ríkisstjórnin ætlaði að setja á stofn til að greiða meintum fórnarlömbum p