Ragnar Árnason, prófessor emeritus, sakar rektor Háskóla Íslands um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og ESB með ákvörðun sinni um að meina honum að halda fyrirlestur á hátíðarsal skólans.Fréttastofa greindi frá því í gær að fyrirlestur dr. Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um Ísland og ESB verði ekki á hátíðarsal skólans eins og auglýst hafði verið. Rektor sagði salinn ekki ætlaðan viðburðum sem eru pólitískir í eðli sínu og að bókun hans hafi ekki fylgt upplýsingar um að félagasamtök kæmu að fundinum.Í yfirlýsingu til fréttastofu segir Ragnar að umsókn hans um salarleiguna hafi verið nákvæmlega í samræmi við fyrirhugaðan fund. Lætur hann umsóknina sjálfa fylgja með. SEGJA FYRIRLESTURINN HVORKI Á VEGUM ÁFRAM ÍSLANDS NÉ ALMENNA BÓKAFÉLAGSINS Í s