Löng röð er í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli og flugfarþegar því þurft að bíða töluvert lengur en venjulega til að komast í gegn.Andri Ómarsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia, segir háönn í sumartraffík og færri tengifarþega skýra tafirnar. Hann hvetur fólk til að mæta tímanlega á flugvöllinn og innrita sig á netinu eða í sjálfsafgreiðsluvélum á flugstöðinni.„Það sem virðist hafa gerst í morgun er að hlutfall tengifarþega var lægra en venjulega og þá verður hlutfall farþega sem þurfa að fara í gegnum öryggisleit hærra. Annað sem gæti kannski skýrt langa röð í morgun er að farþegar sem áttu flug seinna um morguninn hafi bara mætt mjög snemma og það lendir þá illa og myndast smá flöskuháls,“ segir Andri.„Það hins vegar er að leysast úr þessu núna og ekki eins margir farþegar í