Hljóðbækur eru um 60% prósent af seldum eintökum en standa aðeins undir 10-15% af tekjum rétthafa, segir framkvæmdastjóri Forlagsins. Höfundar vonast til að fá meira fyrir sinn snúð með aukinni samkeppni.Í vor hóf ný hljóðbókaveita göngu sína. Sagnaland skilaði fyrsta uppgjöri til útgefenda í sumar. Sigþrúður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Forlagsins segir fyrstu vísbendingar gefa til kynna að greiðslur til rétthafa frá nýju veitunni séu hlutfallslega hærri.Sagnaland er enn að hasla sér völl og uppgjörið veltur bæði á fjölda áskrifenda og á hvað þau hlusta. Veitan lagði upp með að hærra hlutfall af tekjum færi til rétthafa og gerir upp við þá fjórum sinnum á ári. FAGNAR AUKINNI SAMKEPPNI Sigþrúður fagnar samkeppninni. „Það er náttúrulega aldrei gott ef að einn aðili er á markaðnum, hva