Fremur úrkomusamt verður í dag um landið norðan- og austanvert en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið og þegar líður á daginn léttir smám saman til. Norðaustanátt um allt land en hægari breytileg átt allra syðst.Hiti á bilinu 7 til 16 stig, mildast syðst. Kólnar heldur í kvöld og dregur úr úrkomu og vindi.Á morgun dregur enn frekar úr norðanáttinni en enn dálítil væta og svalt á Norður- og Austurlandi. Sunnan- og vestanlands verður bjart og hiti 15 til 16 stig þar sem best lætur. ÞUNGBÚIÐ Á SÓLMYRKVADEGINUM Eftir helgi má reikna með hægum vindi og víða verður léttskýjað. Norðan- og austanlands hlýnar á ný. Á þriðjudag er útlit fyrir að lægð nálgist landið. Það þykknar upp og rignir, fyrst syðst. Veður helst að mestu eins á miðvikudag.Á sólmyrkvadeginum, 12. ágúst, bendir flest til