Með örfáum undantekningum hef ég tekið þátt í Gleðigöngunni á Íslandi frá upphafi. Alltaf jafn gaman, alltaf jafn sérstakt. Og hvert skipti hefur gefið tilefni til að rifja upp þá vegferð sem hefur tryggt forystu Íslands þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Ísland er í þriðja sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe sem sýnir stöðu og réttindi hinsegin fólks og í fyrsta sæti á réttindakorti TGEU (Trans Europe and Central Asia).