Enn og aftur erum við minnt rækilega á það þessa sumarmánuði að brýnasta verkefni mannkyns jafnhliða friðsamlegri sambúð er að hverfa frá notkun kola og olíutengdra orkugjafa. Nýlegar fréttir utan úr heimi hafa ekki síst snúist um skógarelda og flótta fjölda borgarbúa frá heimilum sínum í Frakklandi og á Spáni.