Hunter Biden segist vera því feginn og þakklátur að faðir hans, Joe Biden Bandaríkjaforseti, náðaði hann skömmu áður en hann lét af embætti. Biden yngri átti yfir höfði sér þunga refsingu fyrir sakamál tengd skattsvikum og skotvopnakaupum.Hann segir forsetann hafa neyðst til að grípa til náðunar til að fá frið fyrir Donald Trump, verðandi forseta. Biden segir hins vegar í samtali við BBC að náðunin hafi ekki verið góð fyrir bandarískan almenning, virðingu fyrir stjórnarskránni og arfleifð forsetans fyrrverandi.„Það er svo auðvelt að gagnrýna þessa ákvörðun,“ sagði Biden og bætti við að sannarlega væri ástæða til þess. Hann ræddi einnig um kvalafulla glímu föður síns við blöðruhálskirtilskrabbamein, sem dreifst hefur um líkamann.Biden eldri sé þó enn virkur og haldi ræður opinberlega. „Hann