Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er kominn til Serbíu til viðræðna við forsetann Aleksandar Vučić og forsætisráðherrann Djuro Macut. Zelensky sagðist í færslu á Telegram í gær ætla að ræða efnahagssamvinnu landanna, varnar- og öryggismál og samskiptin við Evrópusambandið.Vučić sagðist í aðdraganda heimsóknarinnar auk annars ætla að ræða aðildarumsókn beggja landanna við Zelensky og þær leiðir sem við þeim blasi. Serbía er eitt fárra Evrópuríkja sem haldið hafa vinfengi við Rússa eftir að innrásin hófst þótt forsetinn hafi undanfarið reynt að bæta tengslin við Úkraínumenn.Vučić hefur meðal annars heitið aðstoð við uppbyggingu að stríði loknu og fékk skömm í hattinn frá Rússum fyrir að afhenda Úkraínumönnum vopn með milligöngu Atlantshafsbandalagsins.Umsókn Serbíu hefur tafist vegna þess að