„Það var vissulega ákveðin áhætta fyrir að fara út í þetta ævintýri með manni sem ég hafði einungis hitt þrisvar í persónu. En maður tapar bara þeim skotum sem maður tekur ekki og í versta falli hefði bara myndast vinskapur út úr þessu,“ segir Erlingur Sigvaldason, sem giftist ástinni sinni David Evan Brooks við óhefðbundna og hátíðlega athöfn í Michigan, Bandaríkunum um síðustu helgi.