Lögregla hvetur til aðgæslu við framúrakstur og árvekni gagnvart vasaþjófum

Enginn er talinn hafa slasast í árekstri á Vesturlandsvegi í gær þar sem bifreið hafnaði utan vegar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rekur slysið til framúraksturs og hvetur til varkárni við þá iðju í morgunskeyti sínu. Áréttað er að ekki skuli aka fram úr nema öruggt sé og raunveruleg þörf á.Lögreglan biðlar jafnframt til fólks að hafa varann á sér á helstu ferðamannastöðum borgarinnar vegna vasaþjófa sem þar eru á ferð. Mikilvægt sé að tilkynna þá iðju umsvifalaust.Ekki tókst að hafa hendur í hári vasaþjófa sem stunduðu brot sín við Hallgrímskirkju í gær. Nokkrar tilkynningar bárust um slagsmál í miðborginni og hávaða frá samkvæmum.Ökumaður sviptur réttindum reyndi að blekkja lögreglumenn með fölsuðum skilríkjum og nokkrir voru stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis- og/eða vímuefna
Lögregla hvetur til aðgæslu við framúrakstur og árvekni gagnvart vasaþjófum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd