Samtök blaða- og fréttamanna í Venesúela hafa andæft hversu takmarkaðan aðgang fjölmiðlar hafa að fundahöldum stjórnar og stjórnarandstöðu um lýðræðisumbætur í landinu.Aðeins ljósmyndurum er heimilt að vera viðstaddir og heldur litlar upplýsingar hafa verið veittar um gang viðræðnanna. Samtökin krefjast gagnsæis og frjáls aðgengis að samninganefndunum.Dinorah Figuera leiðir samninganefnd stjórnarandstöðunnar en hún flúði til Spánar vegna ofsókna og hótana leyniþjónustunnar. Nóbelsverðlaunahafinn Maria Corina Machado fékk ekki boð um þátttöku.AFP-fréttaveitan segir samtökin hafa kvartað við fulltrúa stjórnarandstöðunnar eftir að öryggisverðir gerðu búnað blaðamannsins Deisy Martinez upptækan, ýjuðu að handtöku hennar uns þeir slepptu henni eftir að hafa eytt ljósmyndum sem hún tók.Sjö mánuð