Rússar sverja af sér alla vitneskju um uppruna sprengidrónans á Leipzig-flugvelli

Stjórnvöld í Moskvu segjast ekki hafa nokkra hugmynd um uppruna dróna sem fannst á alþjóðaflugvellinum í Leipzig á þriðjudagskvöldið. Völlurinn er mikilvæg miðstöð fyrir flutninga Þýskalandshers og Atlantshafsbandalagsins og dróninn fannst nærri flutningaflugvélum frá Úkraínu.Þýsk lögregluyfirvöld sögðu drónann búinn sprengi- og íkveikjubúnaði og grunur leikur á tilraun til fjölþáttaárásar á Þýskaland. Þýsk yfirvöld hafa ekki nefnt Rússa berum orðum þótt innanríkisráðherrann Alexander Dobrindt segi drónann skapa nýtt hættustig fyrir landið.Úkraínski sendiherrann í Þýskalandi segir engum öðrum til að dreifa en Rússum. Rússneska sendiráðið í Berlín segir viðbrögðin enn eina bylgju geðshræringar knúna áfram af Rússahatri.Atburðarásinni sé lýst sem röð tilviljana sem hafi komið í veg fyrir tjó
Rússar sverja af sér alla vitneskju um uppruna sprengidrónans á Leipzig-flugvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd