Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart ítölskum ferðalöngum

Spánverjar hafa frá miðnætti krafið ítalska ferðamenn um vegabréf á landamærunum. Sú ráðstöfun gildir til 7. september.Innanríkisráðuneytið segir með því brugðist við sams konar aðgerðum ítalskra stjórnvalda vegna flótta tugþúsunda farandfólks frá Marokkó til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Ítalir slitu 1. ágúst tímabundið Schengen-samstarfinu við Spán um frjálsa för íbúa ríkja Evrópusambandsins.Atburðurinn í Ceuta vakti spurningar um landamæraöryggi innan Evrópu og Spánverjar lágu undir þungu ámæli vegna viðbragða sinna. Næstum allir sem fóru yfir landamærin hafa snúið aftur til Marokkó. Talið er að um 80 manns hafi látið lífið.Spænska ríkisstjórnin sagði viðbrögð Ítala ósanngjörn og óréttlát gagnvart spænskum ríkisborgurum ásamt því að vera í hrópandi andstöðu við hagsmuni Evrópusambandsins
Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart ítölskum ferðalöngum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd