Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna óttast að borgarastyrjöldin blossi upp að nýju

Hans Grundberg, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna fyrir Jemen, varar við að umfangsmikil átök brjótist þar út að nýju í fyrsta skipti frá því viðkvæmt vopnahlé komst á í borgarastríðinu árið 2022. Spennan tók að magnast í júlí þegar stjórnarherinn gerði loftárásir á flugvöllinn í höfuðborginni Sanaa, sem uppreisnarsveitir Húta ráða yfir. Þá lýstu Hútar yfir hafnbanni á sádiarabískar hafnir. Síðan hafa Hútar ráðist á olíuflutningaskip á Rauðahafi og hert árásir sínar á stjórnarherinn. Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen. Hútar gerðu í gær flugskeytaárás á Sádi Arabíu þar sem ellefu almennir borgarar særðust. Tíðindi bárust einnig af því í gær að uppreisnarsveitir Húta hefðu drepið tu
Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna óttast að borgarastyrjöldin blossi upp að nýju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd