Þrír létu lífið í árásum á Brovary — eldflaugaárás vofir yfir Kyiv

Rússar hafa oft gert árásir á Brovary. Þessi ljósmynd var tekin í mars.EPA / SERGEY DOLZHENKOBarn var meðal þeirra þriggja sem létu lífið í loftárásum Rússa á borgina Brovary austan við úkraínsku höfuðborgina Kyiv í kvöld. Í Telegram-færslu hernaðaryfirvalda á Kyiv-svæðinu segir að þrír til viðbótar hafi særst og að fallandi brak hafi skemmt hús og farartæki. Sprengingar hafa einnig kveðið við í höfuðborginni og varað hefur verið við yfirvofandi eldflaugaárás. Loftvarnarflautur óma um gervalla borgina og íbúar eru hvattir til að leita skjóls.
Þrír létu lífið í árásum á Brovary — eldflaugaárás vofir yfir Kyiv

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd